Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Skýringar fengnar. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 135/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu dómsmálaráðuneytisins á stjórnsýslukæru og skorts á svörum við fyrirspurnum vegna málsins.

Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að gert væri ráð fyrir því að niðurstaða lægi fyrir í mars. Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. mars 2026.