Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Skýringar fengnar. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 73/2026)

Kvartað var yfir töfum á meðferð máls hjá kærunefnd jafnréttismála.

Í svari kærunefndarinnar í tilefni af fyrirspurn setts umboðsmanns kom fram að nefndin hyggðist ljúka málinu á næstunni. Þá voru veittar upplýsingar um aðstæður nefndarinnar og málafjölda. Í ljósi þessara skýringa og áforma nefndarinnar taldi settur umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

  

Settur umboðsmaður lauk málinu með bréfi 18. mars 2026.