Atvinnuréttindi og atvinnuleyfi. Ársfrestur.

(Mál nr. 112/2026)

A kvartaði yfir ákvörðun Samgöngustofu um að synja honum um endurnýjun skipstjórnarréttinda. Í kvörtuninni gerði A einnig athugasemdir við að erfiðlega gengi að fá svör frá stofnuninni við fyrirspurnum vegna málsins.

Þar sem málið var til lykta leitt með ákvörðun Samgöngustofu 14. janúar 2023 voru ekki skilyrði til að fjalla nánar um hana hjá umboðsmanni, enda barst kvörtunin að liðnum þeim ársfresti sem kveðið er á um í lögum um umboðsmann. Þar sem A hugðist beina skriflegu erindi til stofnunarinnar vegna málsins taldi umboðsmaður að skilyrði væru ekki til nánari umfjöllunar um kvörtunina að öðru leyti.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. mars. 2026.