A kvartaði yfir skilmálum láns síns hjá Menntasjóði námsmanna og viðbrögðum stofnunarinnar við erindum þar að lútandi.
Þar sem ráðið varð að kæruleiðir hefðu ekki verið tæmdar í samræmi við fyrirmæli laga um Menntasjóðinn var umboðsmanni ekki fært að taka kvörtunina til nánari athugunar að svo stöddu. Umboðsmaður vakti jafnframt athygli á þeim möguleika, að því er varðaði almennar athugasemdir um lögmæti gengistryggðra lána og skilmála þeirra, að beina erindi þess efnis til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. mars 2026.