A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, þar sem ákvörðun Reykjavíkurborgar um tiltekna fjárhagsaðstoð á nánar tilgreindu tímabili var staðfest.
Þar sem úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp utan þess ársfrests sem mælt er fyrir um í lögum um umboðsmann voru ekki skilyrði til að taka kvörtunina til nánari athugunar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. mars 2026.