Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 102/2026)

A kvartaði yfir töfum hjá Útlendingastofnun á afgreiðslu dvalarleyfisumsóknar og svörum við erindum þar að lútandi.

Í svari stofnunarinnar við fyrirspurn umboðsmanns kom meðal annars fram að verið væri að leggja lokahönd á ákvörðun í málinu sem yrði birt umsækjanda á allra næstu dögum. Að því virtu, og með vísan til þess að öðrum erindum vegna málsins virtist hafa verið svarað, taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. mars 2026.