A kvartaði yfir annars vegar skorti á viðbrögðum tilgreinds lögreglustjóra við fyrirspurn hans og hins vegar töfum á meðferð sama lögreglustjóra á sakamáli svo og því að ákærandi, sem komið hefði að málum A, hefði ekki verið ráðinn í samræmi við lög.
Við meðferð málsins kom í ljós að úrskurðarnefnd um upplýsingamál var með kæru vegna sömu atvika og lýst er að framan til meðferðar. Af þeim sökum taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að sú kvörtun A yrði tekin til meðferðar að svo stöddu.
Þar sem fyrir lá að ríkissaksóknari hafði nýlega beint því til lögreglustjóra að hraða meðferð fyrrnefnds sakamáls taldi umboðsmaður ekki tilefni til að taka þann þátt kvörtunarinnar til frekari athugunar. Þá taldi umboðsmaður að A þyrfti að bera aðfinnslur sínar um aðkomu fyrrnefnds ákæranda að málum hans undir ríkissaksóknara áður en kvartað væri af því tilefni til umboðsmanns.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. febrúar 2026.