A kvartaði yfir viðbrögðum stjórnvalda við fyrirspurn sem laut að heimild skóla til að fara fram á að foreldrar útvegi sjálfir ritföng fyrir börn sín.
Umboðsmaður taldi, og þá með hliðsjón af þeim svörum sem A hafði fengið frá bæði viðkomandi sveitarfélagi og mennta- og barnamálaráðuneytinu, að ekki væri til efni til að taka kvörtunina til nánar athugunar, enda kvæðu lög skýrt á um að ekki hvíli skylda á sveitarfélögum að útvega nemendum ritföng.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. febrúar 2026.