Erlendir ríkisborgarar. Dvalarleyfi. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 100/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu umsóknar hans um dvalarleyfi sem stöfuðu af því að beðið væri niðurstöðu áreiðanleikakönnunar hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Af hálfu umboðsmanns var vísað til þess að ljóst væri að þær tafir sem orðið hefðu á umsókninni væru almennar en ekki bundnar við mál A sérstaklega. Taldi umboðsmaður því ekki tilefni til að taka kvörtunina til nánari athugunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 26. febrúar 2026.