Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 29/2026)

A kvartaði yfir töfum á meðferð og afgreiðslu Persónuverndar á kvörtun sem hann beindi til stofnunarinnar í nóvember 2022.

Í svari Persónuverndar við fyrirspurn umboðsmanns um hvort kvörtunin hefði borist, og þá hver afdrif málsins hefðu orðið, kom fram að hún hefði borist og veittar upplýsingar um þann farveg sem málið var lagt í. Að þessu gættu taldi umboðsmaður ekki tilefni til frekari athugunar vegna málsins.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 26. febrúar 2026.