A leitaði með tvær kvartanir til umboðsmanns Alþingis yfir viðbrögðum nefndar um eftirlit með lögreglu við tveimur gagnabeiðnum. Laut önnur beiðnin að kvörtun, sem A hafði komið á framfæri við nefndina, og hin að máli skjólstæðings A. Samkvæmt gögnum, sem fylgdu kvörtununum, hafði nefnd um eftirlit með lögreglu upplýst A um að nefndin afhenti ekki gögn, sem stöfuðu frá lögregluembættum eða öðrum, en A var bent á að óska gagnanna frá tilgreindum lögreglustjóra.
Í tilefni kvörtunarinnar var nefnd um eftirlit lögreglu ritað bréf þar sem þess var óskað að skýrt yrði á hvaða lagagrundvelli beiðnum A hefði verið synjað og hvort nefndin teldi synjanirnar hafa verið í samræmi við lög. Í svari nefndarinnar til umboðsmanns kom fram að synjanirnar hefðu verið afturkallaðar og yrðu beiðnirnar afgreiddar á nýjan leik.
Þar sem synjanirnar, sem kvartanirnar lutu að, höfðu verið afturkallaðar og fyrir dyrum stóð að þær yrðu afgreiddar á nýjan leik taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtunum A.
Umboðsmaður lauk málunum með bréfi 25. febrúar 2026.