Umferðarmál. Fatlað fólk. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 20/2026)

Samtökin A kvörtuðu yfir viðbrögðum sýslumannaráðs við málaleitun þeirra í tengslum við umgjörð stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða.  

Umboðsmaður taldi rétt að aðfinnslur samtakanna yrðu fyrst bornar upp við innviðaráðherra áður en kvartað væri til umboðsmanns í ljósi þess að hann fer með yfirstjórn á þessu málefnasviði.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. febrúar 2026.