Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu kæru vegna synjunar á umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt hjá dómsmálaráðuneytinu.
Í ljósi þess að ekki varð annað ráðið en að málið væri í farvegi hjá ráðuneytinu og í virkri vinnslu taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast vegna málsins.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. febrúar 2026.