A kvartaði yfir lokaúttekt mannvirkis og málsmeðferð og eftirliti byggingarfulltrúa þar að lútandi.
Samkvæmt A hafði kæru vegna málsins verið beint til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála en hún síðan dregin til baka. Þar sem ráðið varð að nefndin hefði ekki kveðið upp úrskurð sinn í málinu taldi umboðsmaður að skilyrði stæðu ekki til nánari umfjöllunar um kvörtunina.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. febrúar 2026.