Eignir ríkisins. Samningar. Utan valdsviðs.

(Mál nr. 47/2026)

A leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir fjárhæð lóðarleigu sem honum væri gert að greiða. Taldi hann fjárhæðina ekki í samræmi við reglur fjármála- og efnahagsráðuneytisins um afgjöld fyrir afnot af landi í eigu ríkissjóðs.

Umboðsmaður vísaði til þess að A leigði landið af sameignarfélagi sem væri einkaréttarlegur aðili. Voru því ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. febrúar 2026.