A kvartaði yfir aðbúnaði á dvalarstað fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þá voru jafnframt gerðar athugasemdir við framkomu starfsmanna og þess óskað að honum yrði fundinn nýr dvalarstaður og fyrirkomulag aðgengis hans að almenningssamgöngum bætt.
Umboðsmaður taldi rétt að áður en borin væri fram kvörtum af slíku tilefni hefðu aðfinnslurnar verið bornar undir Vinnumálastofnun og í framahaldinu eftir atvikum undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. febrúar 2026.