Kvartað var yfir úrskurði áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema þar sem fjallað hafði verið um meðferð og niðurstöðu máls einstaklings sem þreytt hafði miðbikspróf sem hluta af doktorsnámi sínu við Háskóla Íslands. Þar á meðal hafði nefndin fjallað um hæfi þeirra sem komu að meðferð málsins, meðal annars prófdómarans sem skipaður hafði verið til að endurmeta miðbiksprófið, auk þess að fjalla um og staðfesta þá niðurstöðu að viðkomandi yrði ekki heimilað að endurtaka miðbiksprófið.
Settur umboðsmaður fjallaði um þær reglur sem gilda um sérstakt hæfi og benti á í ljósi þeirra væru ekki forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu nefndarinnar um hæfi þeirra sem komið höfðu að meðferð málsins hjá háskólanum. Taldi settur umboðsmaður að þau tengsl og aðstæður sem viðkomandi hefði nefnt væru ekki þannig vaxin að þau yllu vanhæfi á grundvelli stjórnsýslulaga. Sá annmarki sem hefði verið á meðferð málsins, það er skortur á því að afstaða rektors hefði legið fyrir um hæfi í einhverjum tilvikum, hefði ekki haft efnislega þýðingu í málinu. Ssettur umboðsmaður taldi jafnframt að ekki væru forsendur til að gera athugasemdir við þá niðurstöðu nefndarinnar að hafna því að ógilda niðurstöðu málsins um að heimila ekki viðkomandi einstaklingi að endurtaka miðbiksprófið. Leit settur umboðsmaður meðal annars til þess að ekki yrði annað ráðið en að nefndin hefði lagt fullnægjandi mat á atvik málsins á grundvelli fyrirliggjandi gagna og þá í samræmi við það hvernig hlutverk nefndarinnar væri afmarkað í lögum.
Athugun málsins gaf settum umboðsmanni tilefni til að senda menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu bréf þar sem meðal annars var gerð grein fyrir því sem komið hefði í ljós við meðferð málsins, það er að netfang nefndarinnar hefði verið óvirkt í einhvern tíma og að nefndarmenn ættu í samskiptum við málsaðila úr vinnunetföngum sínum. Óskað var eftir að ráðuneytið tæki afstöðu til þess hvort tilefni væri til viðbragða af hálfu ráðuneytisins og að umboðsmaður yrði upplýstur fyrir 25. febrúar 2026 hvort svo væri og þá hver viðbrögðin yrðu.
Settur umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. febrúar 2026.