A kvartaði yfir synjun Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun á Schengen-svæðið. Þá voru gerðar athugasemdir við fyrirhugaðar tafir kærunefndar útlendingamála á afgreiðslu kæru hans.
Þar sem málið var enn til meðferðar hjá kærunefndinni voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að synjun umsóknarinnar yrði tekin til frekari athugunar að svo stöddu. Þá taldi umboðsmaður að ekki hefði orðið slíkur dráttur á afgreiðslu kærunnar að tilefni væri til þess að aðhafast sérstaklega í málinu á þeim grundvelli.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 29. janúar 2026.