A kvartaði yfir framgöngu lögreglu og tollgæslu við komu til landsins.
Umboðsmaður taldi rétt að áður en borin væri fram kvörtun af slíku tilefni hefðu aðfinnslurnar verið bornar annars vegar undir tollgæslustjóra og ríkisskattstjóra og í framhaldinu undir fjármála- og efnahagsráðuneytið, teldi A sig enn órétti beittan að fenginni afstöðu ríkisskattstjóra, og hins vegar nefnd um eftirlit með lögreglu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 29. janúar 2026.