A kvartaði yfir efni tveggja reglugerða, nr. 1582/2024, um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, og nr. 780/2025, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra vegna myndgreininga sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Kvörtunin laut einnig að tilhögun gjaldtöku samkvæmt gjaldskrá Sjúkratrygginga og viðbrögðum stofnunarinnar við erindum A þar að lútandi.
Umboðsmaður leit til þess að kvörtunin varðaði einkum efni sem heyrði undir yfirstjórn og eftirlit heilbrigðisráðherra. Þar sem A hafði ekki leitað til heilbrigðisráðuneytisins með athugasemdir sínar vegna málsins taldi umboðsmaður rétt, áður en þær gætu komið til frekari athugunar hjá embættinu, að athugasemdirnar yrðu fyrst bornar undir ráðuneytið.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. desember 2025.