Kvartað var yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðni um gjafsókn.
Í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns ákvað ráðuneytið að endurupptaka málið og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 14. ágúst 2024.
Vísað er til kvörtunar yðar 13. maí 2024, fyrir hönd A, er lýtur að ákvörðun dómsmálaráðuneytisins 20. mars þess árs um að synja beiðni hennar um gjafsókn.
Í tilefni af kvörtuninni var dómsmálaráðuneytinu ritað bréf 14. júní sl. þar sem þess var óskað að umboðsmanni yrðu afhent afrit af öllum gögnum málsins og að ráðuneytið veitti tilteknar upplýsingar og skýringar. Í svarbréfi ráðuneytisins 12. júlí sl. kom fram að ráðuneytið hefði ákveðið að endurupptaka málið. Bréfinu fylgdi afrit af tilkynningu ráðuneytisins þann sama dag til yðar þar um.
Með vísan til framangreinds er ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar og læt ég því athugun minni á málinu því lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ef þér teljið umbjóðanda yðar enn rangsleitni beittan að fenginni nýrri niðurstöðu ráðuneytisins getið þér leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.