A kvartaði yfir töfum á meðferð Útlendingastofnunar á umsókn hans svo og tilgreindum atriðum við efnislega meðferð málsins.
Að því leyti, sem kvörtunin laut að efnislegri meðferð málsins, taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að kvörtunin yrði tekin til meðferðar enda afgreiðslu málsins ólokið.
Með vísan til þess að ekki varð séð að A hefði sjálfur spurst fyrir um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins svo og að því gættu að vísbendingar voru um að málsmeðferðartíminn væri ekki einskorðaður við mál A taldi umboðsmaður ekki nægilegt tilefni til frekari athugunar á þeim þætti kvörtunarinnar.
Umboðsmaður upplýsti A um að kvörtun hans og fleiri af sama toga hefðu orðið umboðsmanni tilefni til að taka málshraða við meðferð mála hjá Útlendingastofnun til almennrar athugunar að eigin frumkvæði.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. október 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 25. september sl. en hún beinist að Útlendingastofnun og ætla verður að hún lúti að meðferð umsóknar þinnar um dvalarleyfi. Lýtur hún annars vegar að því að meðferð umsóknarinnar hafi dregist úr hófi og hins vegar að efnislegri athugun Útlendingastofnunar, m.a. að ályktunum, sem þú óttast að Útlendingastofnun hafi dregið við meðferð málsins, t.d. af viðtali við þig og öðrum upplýsingum.
Með vísan til efnis kvörtunar þinnar tek ég fram að almennt er ekki gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þar með talið æðra stjórnvald eftir atvikum, hafa lokið umfjöllun sinni um það, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Þegar kvörtun lýtur að efnislegri meðferð stjórnvalds á máli, sem enn er til meðferðar og hefur af þeim sökum ekki heldur sætt kæru til æðra stjórnvalds þegar það á við, eru ekki uppfyllt skilyrði til að kvörtun verði tekin til meðferðar. Á þetta við um þá hluta kvörtunar þinnar er lúta að efnislegri meðferð Útlendingastofnunar á umsókn þinni. Læt ég meðferð minni á þeim hluta kvörtunarinnar því lokið af þeim sökum.
Þrátt fyrir framangreind ákvæði 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 hefur umboðsmaður talið að unnt sé að kvarta í tilefni tafa við málsmeðferð enda þótt mál sé eðli málsins samkvæmt enn til meðferðar við slíkar aðstæður. Slíkar kvartanir eru þó aðeins teknar til frekari athugunar ef fyrir liggur að mál hefur verið til meðferðar í nokkurn tíma og sá sem í hlut á hefur sjálfur spurst fyrir um hvað líði meðferð og afgreiðslu máls síns. Kvörtun þinni fylgdu engin gögn og er því óljóst hvort þú hefur beint slíkri fyrirspurn til Útlendingastofnunar.
Uppfylli kvörtun framangreind skilyrði hefur umboðsmaður í ákveðnum tilfellum farið þá leið að spyrjast fyrir hjá viðkomandi stjórnvaldi um hvað líði meðferð og afgreiðslu viðkomandi máls. Hefur það ekki síst verið gert í þeim tilgangi að greiða fyrir því að borgarinn fái sem fyrst úrlausn sinna mála enda hefur reyndin í flestum tilvikum verið sú að stjórnvaldið hefur brugðist við og afgreitt málið eða gefið skýringar á því hvað hafi valdið töfunum og hvenær ákvörðunar megi vænta í því. Í þessum tilvikum lýkur umboðsmaður athugun sinni á málinu.
Þegar niðurstaða liggur ekki fyrir hefur umboðsmaður hins vegar gætt varfærni við að taka afstöðu til þess hvort málsmeðferðartími geti talist óeðlilegur eða tafir við meðferð málsins óréttlættar í skilningi málshraðareg lunnar, þ.e. að afgreiðsla málsins hafi dregist óhæfilega að teknu tilliti til sjónarmiða um atriði eins og umfang og eðli máls og almennt álag í starfsemi viðkomandi stjórnvalds.
Mér hafa undanfarin misseri borist allmargar kvartanir í tilefni tafa við meðferð mála hjá Útlendingastofnun. Hef ég í sumum tilfellum talið rétt að spyrjast fyrir hjá stofnuninni um hvað líði meðferð og afgreiðslu umræddra mála. Hefur stofnunin veitt mér þær skýringar að mikið álag sé í starfsemi hennar sökum mikils málafjölda og hafa tafir því verið almennar í langflestum tilfellum. Enda þótt ekki liggi fyrir samkvæmt framangreindu upplýsingar um viðbrögð og skýringar Útlendingastofnunar til þín á því hve langan tíma meðferð máls þíns hefur tekið tel ég ekki óvarlegt að áætla að hið sama eigi að minnsta kosti að einhverju leyti við í tilfelli þíns máls, þ.e. að sá tími, sem meðferð þess hefur tekið, sé ekki bundinn við þitt mál heldur ráðist af almennum orsökum, einkum miklum málafjölda hjá Útlendingastofnun. Að þessu gættu tel ég að ef Útlendingastofnun yrði send fyrirspurn af minni hálfu um hvað liði meðferð og afgreiðslu umsóknar þinnar, yrðu mér veitt sams konar svör og í öðrum kvörtunarmálum. Tel ég af þeim sökum og með vísan til þess að ekki verður séð að þú hafir sjálfur spurst fyrir um framgang málsins ekki nægilegt tilefni til frekari athugunar á kvörtuninni að svo stöddu og lýk því meðferð minni á málinu. Ég tek þó fram að ef þú telur síðar, að undangegnum fyrirspurnum til Útlendingastofnunar um hvað líði afgreiðslu umsóknar þinnar, að meðferð málsins hafi dregist óhæfilega, getur þú leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.
Auk framangreinds lýk ég meðferð minni á kvörtun þinni með vísan til þess að hún og aðrar svipaðir kvartanir, sem beinast að Útlendingastofnun og lúta að tafsamri málsmeðferð stofnunarinnar, hafa orðið mér tilefni til að taka málsmeðferð Útlendingastofnunar að þessu leyti til athugunar að eigin frumkvæði, sbr. 5. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Hefur hjálagt bréf í samræmi við það verið sent Útlendingastofnun þar sem tilgreindra skýringa og upplýsinga er óskað. Ég tek þó fram að þessi ákvörðun mín um að taka málsefnið til athugunar að eigin frumkvæði hefur ekki áhrif á þá niðurstöðu að láta meðferð kvörtunar þinnar lokið.
Með vísan til þess, sem rakið er að framan, er athugun minni á kvörtun þinni lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.