Kvartað var yfir álagningu Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á stöðubrotsgjaldi.
Borgarlögmaður greindi umboðsmanni frá því að ákveðið hefði verið að afturkalla álagningu gjaldsins og endurgreiða það. Var því ekki tilefni fyrir umboðsmann til að aðhafast frekar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. ágúst 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 12. febrúar sl. sem lýtur að álagningu stöðubrotsgjalds 20. janúar sl. fyrir brot gegn 3. mgr. 28. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og synjun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur 12. febrúar sl. á endurupptökubeiðni þinni.
Í tilefni af kvörtunni var borgarlögmanni ritað bréf 29. maí sl. þar sem óskað var eftir nánar tilteknum upplýsingum og skýringum. Nú hafa svör borgarlögmanns borist með bréfi 20. ágúst sl. þar sem fram kemur að ákveðið hafi verið að afturkalla álagningu gjaldsins á grundvelli 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og endurgreiða þér það. Þar sem fallið hefur verið frá álagningunni tel ég ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar að svo stöddu.
Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.