Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 374/2026)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu atvinnuvegaráðuneytisins á stjórnsýslukæru. Laut kæran að ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að synja umsókn um rekstrarleyfi vegna gististaðar.

Að fengnum skýringum ráðuneytisins, þar sem meðal annars kom fram að stefnt væri að því að ljúka afgreiðslu kærunnar fyrir sumarlok, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréf 7. júlí 2026.

   

Vísað er til kvörtunar A sf. 5. júní sl. er lýtur að töfum á afgreiðslu atvinnuvegaráðuneytisins á kæru félagsins, dags. 9. janúar 2024. Lýtur kæran að ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu 2. nóvember 2023 um að synja umsókn félagsins um rekstrarleyfi vegna gististaðar í flokki II, en henni var upphaflega beint til menningar- og viðskiptaráðuneytisins sem fór þá með málefni gististaða.

Í tilefni af kvörtuninni var atvinnuvegaráðuneytinu ritað bréf 19. júní sl. þar sem þess var meðal annars óskað að umboðsmanni yrðu veittar upplýsingar um hvað liði meðferð og afgreiðslu kærunnar. Svar ráðuneytisins barst 29. júní sl. en í því er ferill málsins rakinn. Er þar jafnframt tekið fram að við breytingar á skipan ráðuneyta í mars 2025 hafi atvinnuvegaráðuneytið tekið við miklum fjölda óleystra mála á málefnasviðinu en ekki hafi enn tekist að vinna niður þann málahala þrátt fyrir að gripið hafi verið til aðgerða. Í ljósi þess og að virtu því viðvarandi álagi sem hafi verið í málaflokknum frá því að hann hafi flust til ráðuneytisins, hafi verið ákveðið að hrinda af stað átaki í sumar þar sem starfsmenn sem vanalega sinni öðrum málaflokkum aðstoði við að greiða úr málunum. Vonir standi til þess að með því verði búið að koma málaflokknum í sem eðlilegasta horf fyrir lok sumars, þar með talið að ljúka afgreiðslu á kæru A sf. sem og öðrum málum sem orðin séu tæk til úrskurðar.

Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu málsins og í ljósi fyrirætlana ráðuneytisins um að ljúka afgreiðslu þess fyrir lok sumars tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu. Gangi fyrirætlanir ráðuneytisins ekki eftir er þér fært að leita til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.

Með vísan til þess sem að framan er rakið lýk ég athugun minni á kvörtuninni, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.