Kvartað var yfir töfum á meðferð máls hjá embætti landlæknis.
Í ljósi svara embættisins taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 7. júlí 2026.
Vísað er til kvörtunar A ehf. 28. maí sl. sem lýtur að töfum á málsmeðferð embættis landlæknis vegna tilkynningar félagsins um rekstur heilbrigðisþjónustu.
Í tilefni af kvörtuninni var embætti landlæknis ritað bréf 3. júní sl. þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvað liði meðferð og afgreiðslu máls félagsins. Meðfylgjandi svar barst frá embættinu 4. júní sl. þar sem fram kemur meðal annars að umsögn óháðs sérfræðings vegna málsins hafi nýlega borist embættinu og hún verið send A ehf. til athugasemda.
Í ljósi svara stofnunarinnar tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun félagsins að svo stöddu. Lýk ég því meðferð minni á henni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.