Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 292/2026)

Kvartað var yfir skorti á viðbrögðum við erindi sem sent hafði verið Neytendastofu.  

Í ljósi svara stofnunarinnar taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 7. júlí 2026.

  

  

Vísað er til kvörtunar þinnar 27. apríl sl. sem lýtur að töfum á svörum Neytendastofu við erindi þínu til stofnunarinnar.

Í tilefni af kvörtuninni var Neytendastofu ritað bréf 27. maí sl. þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvort stofnunin hefði móttekið erindi þitt og þá hvaða liði viðbrögðum við því. Meðfylgjandi svar barst frá stofnuninni 2. júní sl., þar sem fram kemur meðal annars að erindi þínu hafi nú verið svarað.

Í ljósi svara stofnunarinnar tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun þinni. Lýk ég því meðferð minni á henni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.