A kvartaði yfir því að fá ekki að heimsækja unnustu sína í fangelsi.
Þar sem ákvörðun um bann við heimsókn hafði ekki verið kærð til dómsmálaráðuneytisins gat umboðsmaður ekki tekið kvörtunina til nánari umfjöllunar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. júlí 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 27. júní sl. yfir því að fá ekki að heimsækja unnustu þína í fangelsi. Í símtali starfsmanns míns við þig 7. júlí sl. kom fram að beiðni þinni um að heimsækja hana í Fangelsið Hólmsheiði hafi verið synjað.
Um heimsóknir til fanga er fjallað í 45. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsinga. Þar segir meðal annars að fangi sem afplánar í lokuðu fangelsi geti fengið heimsóknir frá fjölskyldu og vinum ef aðstæður í fangelsi leyfi og slíkt teljist gagnlegt sem þáttur í refsifullnustu hans, sbr. 1. mgr. greinarinnar. Forstöðumaður getur ákveðið að banna tilteknum mönnum að heimsækja fanga ef nauðsynlegt þykir til að viðhalda ró, góðri reglu og öryggi í fangelsi og til að koma í veg fyrir refsiverðan verknað eða ef ástæða er til að ætla að heimsóknin verði misnotuð að öðru leyti. Slíka ákvörðun skal rökstyðja skriflega, sbr. 1. mgr. 46. gr. laganna. Ákvarðanir um takmarkanir á heimsóknum eru kæranlegar til dómsmálaráðuneytis, sbr. 1. mgr. 95. gr. laganna.
Ástæða þess að ég bendi á þessar reglur er sú að ekki unnt að kvarta til umboðsmanns fyrr en æðra stjórnvald, sem í þessu tilviki er dómsmálaráðuneytið, hefur fjallað um málið, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Er þannig gert ráð fyrir að stjórnvöld fái tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum sem hugsanlega er ekki í samræmi við lög áður en leitað er til umboðsmanns. Í samræmi við þetta get ég ekki tekið kvörtunina til frekari athugunar að svo stöddu. Kjósir þú að bera ákvörðunina, um að banna þér að heimsækja unnustu þína í Fangelsið Hólmsheiði, undir dómsmálaráðuneytið getur þú leitað til mín á ný þegar niðurstaða þess liggur fyrir, sért þú ósáttur við hana.
Með vísan til þess sem að framan er rakið lýk ég umfjöllun minni um kvörtun þína, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.