A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Með úrskurðinum var kæru A vegna breytingar á deiliskipulagi vísað frá þar sem kæran barst utan kærufrests.
Með vísan til þess að kæran barst rúmum sex mánuðum frá birtingu deiliskipulagsins í Stjórnartíðindum, og að virtum gögnum málsins að öðru leyti, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemd við niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. maí 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 5. maí sl. sem beinist að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og lýtur að úrskurði nefndarinnar 30. apríl sl. í máli nr. UUA2604009. Með úrskurðinum var vísað frá kæru þinni 16. apríl sl. á ákvörðun sveitarstjórnar Rangárþings eystra frá 15. maí 2025 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi úr landi X.
Í úrskurði nefndarinnar er rakið að sveitarstjórn Rangárþings eystra hafi 13. febrúar 2025 samþykkt að auglýsa tillögu að nánar tilgreindri breytingu á deiliskipulagi X. Samkvæmt úrskurðinum var tillagan kynnt lóðarhöfum, send til umsagnaraðila og auglýst á tímabilinu 17. febrúar 2025 til og með 3. apríl sama ár. Eins og fyrr greinir var deiliskipulagsbreytingin samþykkt á fundi sveitarstjórnar 15. maí 2025 og tók hún gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 10. október 2025.
Samkvæmt úrskurðinum í málinu byggði niðurstaða nefndarinnar á því að stjórnsýslukæra þín hafi borist að liðnum kærufresti samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þar kemur fram að kærufrestur sé einn mánuður frá því að kæranda varð kunnugt eða mátti vera kunnugt um þá ákvörðun sem kæra lýtur að. Þá segir í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að ef kæra hefur borist að liðnum kærufresti skuli vísa henni frá nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða ef veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.
Fyrrgreind ákvörðun sveitarstjórnar var birt í B-deild Stjórnartíðinda 10. október 2025 og telst kærufrestur frá þeim tímamörkum, sbr. 2. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kæra þín barst úrskurðarnefndinni 16. apríl sl., eða rúmum sex mánuðum eftir birtingu deiliskipulagsins í Stjórnartíðindum. Að þessu virtu tel ég ekki tilefni til að gera athugasemd við þá niðurstöðu nefndarinnar að kæra þín hafi borist utan lögbundins kærufrests. Þá tel ég ekkert fram komið í málinu sem gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi ekki borist fyrr eða að veigamiklar ástæður mæli með því að hana hafi átt að taka til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar læt ég athugun minni vegna kvörtunarinnar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.