Börn. Barnavernd. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 219/2026)

A kvartaði yfir könnun máls hjá barnaverndarþjónustu X.

Þar sem málið var enn til meðferðar hjá barnaverndarþjónustunni voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari athugunar að svo stöddu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. apríl 2026.   

    

Vísað er til kvörtunar þinnar 28. mars sl. sem beinist að barnaverndarþjónustu X. Eru í kvörtuninni gerðar nánar greindar athugasemdir við stjórnsýslu barnaverndar-þjónustunnar. Í tilefni af kvörtuninni var þér sendur tölvupóstur 7. apríl sl. þar sem þess var óskað, í því skyni að umboðsmaður gæti lagt mat á hvort skilyrði væru uppfylllt til þess taka kvörtunina til nánar athugunar, að þú gerðir nánari grein fyrir því að hverju kvörtunin beindist. Með tölvupósti 9. sama mánaðar afhentir þú umboðsmanni afrit af óundirritaðri áætlun barnaverndarþjónustunnar um meðferð máls samkvæmt 23. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Af því tilefni var haft samband við þig símleiðis 24. apríl sl. þar sem þess var óskað að upplýst yrði hvort endanleg áætlun um meðferð málsins lægi fyrir eða hvort málið væri enn til meðferðar. Var af þinni hálfu upplýst um að málið væri enn til meðferðar.

Af þessu tilefni tel ég rétt að geta þess að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvaldið hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Að baki þessu ákvæði býr það sjónarmið að stjórnvöld skulu fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra líkt og umboðsmanns Alþingis. Af þessu leiðir jafnframt að lögin gera almennt ekki ráð fyrir að umboðsmaður hafi afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þar með talin æðri stjórnvöld, hafa lokið umfjöllun sinni um það.

Ástæða þess að ég nefni þetta er sú að um fjallað er um áætlun um meðferð máls í 23. gr. barnaverndarlaga. Í 1. mgr. greinarinnar segir að þegar mál hefur verið nægjanlega kannað að mati barnaverndarþjónustu skuli þjónustan taka saman greinargerð þar sem lýst sé niðurstöðu könnunar, tiltekið er hverra úrbóta sé þörf og settar eru fram tillögur að heppilegum úrræðum ef því er að skipta. Er þar jafnframt kveðið á um að ákvörðun barnaverndarþjónustu um að loka máli á þessu stigi geti foreldrar skotið til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Fyrir liggur að mál þitt er enn til meðferðar hjá barnaverndarþjónustu X. Verði máli þínu lokið á grundvelli 1. mgr. 23. gr. barnaverndarlaga er þér jafnframt fært að kæra þá ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála. Kjósir þú að fylgja málinu frekar eftir fyrir úrskurðarnefndinni og teljir þú þig enn órétti beitta, að fengnum úrskurði nefndarinnar, er þér fært að leita til umboðsmanns á ný með kvörtun þar að lútandi. Þar til málinu hefur verið endanlega lokið eru hins vegar ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin verði tekin til frekari athugunar að svo stöddu.

Lýk ég því athugun minni á kvörtuninni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.