Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 143/2026)

Kvartað var yfir töfum Seðlabanka Íslands á afgreiðslu umsóknar um tiltekna viðurkenningu.

Að fengnum skýringum Seðlabankans, þar sem fram kom að ákvörðun hefði verið tekin um umsóknina, taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. mars 2026.

   

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 26. febrúar sl. er lýtur að því að umsókn þín til Seðlabanka Íslands 28. desember 2022, um viðurkenningu sem [...], sé enn óafgreidd.

Í tilefni af kvörtuninni var Seðlabankanum ritað bréf 10. mars sl. þar sem þess var óskað að umboðsmanni yrðu veittar upplýsingar um hvað liði meðferð og afgreiðslu umsóknarinnar. Meðfylgjandi svar Seðlabankans barst 24. mars sl. en þar kemur fram að umsóknin hafi verið afturkölluð af þinni hálfu 25. júní 2025 og hafi málinu því verið lokið án efnisákvörðunar. Seðlabankanum hafi síðan borist erindi frá þér 8. ágúst sama ár þar sem þess hafi verið óskað að að umsóknin myndi hljóta áframhaldandi efnismeðferð. Erindið hafi verið tekið til afgreiðslu sem ný umsókn, enda hafi fyrri umsóknin verið afturkölluð og því máli þar með lokið. Seðlabankinn hafi nú tekið ákvörðun varðandi síðari umsóknina og kynnt þér hana með erindi dagsettu 24. mars sl.

Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu umsóknarinnar og þar sem þeirri afgreiðslu er nú lokið tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.