A kvartaði yfir lögum um kílómetragjald.
Þar sem kvörtunin laut að lagasetningu Alþingis og þar sem ekki lá fyrir ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beindist sérstaklega að A eða varðaði beinlínis hagsmuni A eða réttindi umfram aðra, voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar. Umboðsmaður benti á að álagning kílómetragjalds er kæranleg til ríkisskattstjóra og kæra mætti úrskurð ríkisskattstjóra til yfirskattanefndar. Ekki væru skilyrði til að kvarta til umboðsmanns vegna álagningar kílómetragjalds fyrr en málið hefði verið lagt í þann kærufarveg.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. janúar 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 7. janúar sl. sem ráðið verður að lúti að lögum um kílómetragjald á ökutæki sem samþykkt voru á Alþingi 18. desember 2025. Í kvörtuninni er tekið fram að þú fellir þig ekki við að greiða þurfi kílómetragjald á grundvelli laganna þegar ökutæki sé statt erlendis og þar með ekki að nota íslenska vegakerfið. Í kvörtuninni er sett fram ósk um að lögin verði endurskoðuð með hliðsjón af því.
Í tilefni af kvörtun þinni tek ég fram að samkvæmt a-lið 4. mgr. 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið umboðsmanns ekki til starfa Alþingis og stofnana þess. Það er því almennt ekki á verksviði umboðsmanns Alþingis að taka afstöðu til þess hvernig til hefur tekist með löggjöf sem Alþingi hefur sett. Ástæða þess að ég bendi á þetta er sú að ég fæ ekki annað ráðið af kvörtun þinni en að hún lúti öðru fremur að því fyrirkomulagi kílómetragjalda sem Alþingi hefur ákveðið.
Þá tel ég rétt að taka fram að meginviðfangsefni umboðsmanns er að taka við kvörtunum frá borgurunum og láta þeim í té álit um það hvort stjórnvöld hafi leyst með réttum hætti úr máli þeirra. Til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann verður því almennt að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varðar beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra.
Í kvörtun þinni eru sem fyrr segir sett fram tiltekin sjónarmið um lög um kílómetragjald á ökutæki. Með hliðsjón af því og þar sem ekki liggur fyrir tiltekin ákvörðun skattyfirvalda sem fara með álagningu kílómetragjalds sem beinist sérstaklega að þér. Af þessum sökum eru ekki uppfyllt lagaskilyrði til þess að kvörtunin verði tekin til frekari meðferðar.
Í þessu sambandi bendi ég á að álagning kílómetragjalds er samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laganna kæranleg til ríkisskattstjóra innan 30 daga frá dagsetningu tilkynningar þar um. Samkvæmt 3. mgr. sömu greinar er svo heimilt að bera úrskurð ríkisskattstjóra þar um, endurákvörðun hans samkvæmt 20. gr. laganna og ákvörðun um sektir samkvæmt 24. gr., undir yfirskattanefnd. Ástæða þess að þetta er tekið fram er sú að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. fyrrgreindra laga um störf umboðsmanns er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu.
Að endingu tel ég rétt að benda á að í 1. mgr. 5. gr. laga um kílómetragjald um ökutæki eru lögfestar tilteknar undanþágur frá greiðslu kílómetragjalds. Í 1. tölulið málsgreinarinnar kemur fram að ekki beri að greiða kílómetragjald af ökutækjum þegar ökutæki hafa verið flutt tímabundið úr landi. Skilyrði fyrir undanþágunni er að gjaldskyldur eigandi eða umráðamaður skrái stöðu akstursmælis, sbr. 7. gr., við brottför úr landinu og við komu til landsins ásamt því að tilgreina að um tímabundinn flutning úr landi sé að ræða. Tollyfirvöldum er heimilt að staðreyna skráningu gjaldskylds aðila. Ef tökutæki er 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd skulu tollyfirvöld við brottför og komu ökutækis lesa af mæli þess til að staðfesta rétta skráningu gjaldskylds aðila. Einnig ber að framvísa staðfestingu til sönnunar á tímabundnum útflutningi á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Nánari upplýsingar um þessa undanþágu veitir Skatturinn.
Með hliðsjón af öllu framangreindu og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, læt ég málinu hér með lokið af minni hálfu. Fari svo að þú leggir málið í þann kærufarveg sem að framan er rakinn, er þér velkomið að leita til mín á nýjan leik að fenginni endanlegri niðurstöðu yfirskattanefndar, teljir þú tilefni til.