Umboðsmaður tók til athugunar gjaldtöku Sorpu bs. fyrir meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs og birtingu gjaldskrár fyrir meðhöndlun úrgangs í B-deild Stjórnartíðinda. Tilefni athugunarinnar var kvörtun sem umboðsmanni barst þar sem fram kom að gjaldskráin hefði ekki verið birt og að ákvæði hennar um raf- og rafeindatækjaúrgang samrýmdist ekki fyrirmælum 1. mgr. 44. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, þar sem segir að söfnunarstöðvum beri að taka við slíkum úrgangi gjaldfrjálst.
Í svari Sorpu bs. voru veittar skýringar á því af hverju ekki væri litið svo á að ákvæði laga nr. 55/2003 um birtingu í Stjórnartíðindum ætti við um umrædda gjaldskrá. Hins vegar yrði ekki séð að heimilt væri að innheimta gjald vegna meðhöndlunar raf- og rafeindatækjaúrgangs gegn skýru lagaákvæði. Upplýst var um að fyrirspurn umboðsmanns hefði leitt til þess að hafin væri vinna á vegum samlagsins við að uppfæra gjaldskrána þannig að fellt yrði út að sérstakt gjald sé innheimt fyrir farm af raf- og rafeindatækjaúrgangi sem er 2m³ að umfangi eða stærri. Þegar ljóst var að engar breytingar hefðu verið gerðar á gjaldskránni óskaði umboðsmaður upplýsinga um ástæður þess og þá hvort og hvenær breytingin væri fyrirhuguð. Í svari Sorpu bs. var greint frá því að af ýmsum ástæðum hefði tafist að ganga formlega frá breytingunni en á fundi 10. desember 2025 hafi stjórn Sorpu bs. samþykkt tillögu um að breyta gjaldskrá endurvinnslustöðva þannig að móttaka á raf- og rafeindatækjaúrgangi verði alfarið gjaldfrjáls. Í ljósi svara og skýringa Sorpu bs. við fyrirspurn umboðsmanns og þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til ákvað umboðsmaður að ljúka athugun sinni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. desember 2025.
Hér með tilkynnist að umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni á gjaldtöku fyrir meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs og birtingu gjaldskrár fyrir meðhöndlun úrgangs, í B-deild Stjórnartíðinda.
Svo sem rakið var í bréfi umboðsmanns til Sorpu bs. 29. apríl 2024 var tilefni athugunarinnar að til umboðsmanns Alþingis leitaði einstaklingur með kvörtun þar sem fram kom að gjaldskrá Sorpu bs. fyrir meðhöndlun úrgangs hefði ekki verið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Einnig kom þar fram það sjónarmið að ákvæði hennar um raf- og rafeindatækjaúrgang samrýmdist ekki fyrirmælum 1. mgr. 44. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, þar sem segir að söfnunarstöðvum beri að taka við slíkum úrgangi gjaldfrjálst. Skilyrði fyrir meðferð kvörtunarinnar voru ekki uppfyllt og lauk umboðsmaður því athugun sinni á málinu með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Þau álitaefni sem kvörtunin laut urðu umboðsmanni þó tilefni til frekari athugunar að eigin frumkvæði, sbr. 5. gr. laga nr. 85/1997.
Í ofangreindu bréfi til Sorpu bs. óskaði umboðsmaður eftir upplýsingum um hvort sú gjaldskrá sem byggðasamlagið starfar eftir og vísað er til hér að framan hafi verið birt í B-deild Stjórnartíðinda. Ef svo væri ekki, var óskað nánari skýringa á því. Þá var óskað nánari upplýsinga um innheimtu Sorpu bs. á gjaldi fyrir meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs og skýringa á því hvernig hún samrýmdist VII. kafla laga nr. 55/2003, einkum 1. mgr. 44. gr. þeirra.
Í svari Sorpu bs. 14. júní 2024 voru veittar skýringar á því af hverju ekki væri litið svo á að ákvæði 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um birtingu gjaldskrár í B-deild Stjórnartíðinda, ætti við um umrædda gjaldskrá Sorpu bs. Einkum var vísað til þess að sveitarfélögin sem standa að byggðasamlaginu birti gjaldskrá vegna innheimtu fyrir meðhöndlun úrgangs á þeirra vegum í B-deild Stjórnartíðinda samkvæmt fyrirmælum í 2. mgr. 23. gr. laganna. Gjald þetta standi undir kostnaði við alla söfnun heimilisúrgangs frá heimilum í lögsagnarumdæmum viðkomandi sveitarfélaga. Gjaldtaka samlagsins sé hins vegar hvorki þjónustugjald sem stjórnvöld innheimti né hefði samlaginu á grundvelli 4. mgr. 23. gr. laganna verið framselt vald til þess að ákvarða og setja gjald samkvæmt 2. mgr. sömu greinar. Þvert á móti lúti gjaldskrá Sorpu bs. ákvæði 1. mgr. 23. gr. laganna sem beinist að bæði opinberum og einkaréttarlegum aðilum.
Í svarinu kom aftur á móti fram um innheimtu gjalds vegna móttöku á raf- og refaeindatækjaúrgangi að gegn skýru ákvæði 1. mgr. 44. gr. laga nr. 55/2003 yrði ekki séð að samlagið hefði heimild til að innheimta gjald vegna hennar. Gildi þar einu hvort um sé að ræða lítinn eða stóran farm. Virtist því vera um að ræða mistök í gjaldskrá samlagsins. Við eftirgrennslan hefði hins vegar komið í ljós að í bókhaldi Sorpu bs. væri ekki að finna neina færslu vegna innheimtu á gjaldi fyrir farm af raf- og rafeindatækjaúrgangi sem er yfir 2m³. Fyrirspurn umboðsmanns Alþingis hefði því leitt til þess að hafin væri vinna á vegum samlagsins við að uppfæra gjaldskrána þannig að til samræmis við ákvæði 1. mgr. 44. gr. laga nr. 55/2003 yrði fellt út að sérstakt gjald sé innheimt fyrir farm af raf- og rafeindatækjaúrgangi sem er 2m³ að umfangi eða stærri.
Umboðsmaður ákvað að ljúka athugun sinni ekki strax heldur fylgjast með framvindu ofangreindra aðgerða í tilefni af fyrirspurninni. Þegar ljóst varð að ekki hafði orðið af breytingu á gjaldskránni var Sorpu bs. á ný ritað bréf 8. desember sl. þar sem óskað var upplýsinga um ástæður þess að gjaldskráin hefði enn ekki tekið breytingum að þessu leyti og þá hvort og hvenær breytingin væri fyrirhuguð.
Í svari Sorpu bs. 18. desember sl. kemur fram að af ýmsum ástæðum hafi tafist á vettvangi samlagsins að ganga formlega frá breytingu gjaldskrárinnar. Stjórn Sorpu bs. hafi hins vegar samþykkt á fundi sínum 10. desember sl. tillögu um að breyta gjaldskrá endurvinnslustöðva þannig að móttaka á raf- og refaeindatækjaúrgangi verði alfarið gjaldfrjáls. Með fyrrgreindri samþykkt hafi því gjaldskrá samlagsins verið leiðrétt til samræmis við það sem fyrirhugað var og umboðsmaður hafði áður verið upplýstur um í svörum samlagsins.
Í ljósi svara og skýringa Sorpu bs. við fyrirspurnum umboðsmanns og þeirra aðgerða sem lýst er í bréfinu frá 18. desember sl. tel ég ekki tilefni til að halda athugun málsins áfram og er henni því hér með lokið.