Kvartað var yfir rannsókn lögreglu, framferði ákæruvalds í tengslum við sakamál á hendur A, auk dómum Landsréttar og Hæstaréttar í máli A.
Af gögnum málsins mátti ráða að máli A, sem var til meðferðar í dómsmálaráðuneytinu og laut að sömu atriðum, væri ekki lokið og voru því skilyrði ekki uppfyllt til að taka málið til frekari athugunar. Þá kom fram að þar sem starfssvið umboðsmanns tekur ekki til starfa dómstóla voru ekki skilyrði til að fjalla um þann þátt kvörtunarinnar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. desember 2025.
Vísað er til kvörtunar þinnar 26. nóvember sl., en ráðið verður af henni að hún lúti að rannsókn lögreglu, framferði ákæruvaldsins við meðferð sakamáls á hendur þér og dómum Landsréttar og Hæstaréttar í sama máli.
Í bréfi mínu til þín 28. október sl. í máli nr. 463/2025, í tilefni af kvörtun þinni sem laut að sömu atriðum, kom fram að umboðsmaður fjallar að jafnaði ekki um mál á meðan það er enn til meðferðar hjá stjórnvöldum, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Af þeim gögnum sem fylgdu kvörtun þinni nú fæ ég ekki annað ráðið en að mál þitt, með málsnúmerið [...], sé enn til meðferðar hjá dómsmálaráðuneytinu. Að þessu gættu er mér ekki fært taka málið til frekari athugunar að svo stöddu.
Þá tek ég fram, líkt og í fyrrgreindu bréfi mínum til þín, að samkvæmt lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið umboðsmanns að jafnaði til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 3. gr. laganna. Í b-lið 4. mgr. sömu greinar segir að starfssvið umboðsmanns taki ekki til starfa dómstóla. Í samræmi við það fellur utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um kvörtun þína að því leyti sem hún snýr að störfum og niðurstöðum dómstóla.
Með vísan til framangreinds lýk ég athugun minni á kvörtun þinni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek fram að sértu ósáttur að fenginni afstöðu ráðuneytisins getur þú leitað til umboðsmanns á ný með kvörtun þar að lútandi og verður þá tekin afstaða til þess hvort og að hvaða marki málið getur komið til athugunar af hálfu umboðsmanns.