Félagsþjónusta sveitarfélaga. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 578/2025)

A leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir töfum á afgeiðslu kæru hans til áfrýjunarnefndar velferðarráðs X sem laut að synjun umsóknar hans um fjárhagsaðstoð.

Þar sem A höfðu nýlega verið veittar upplýsingar um stöðu málsins og hvenær fyrirhugað væri að það yrði tekið fyrir hjá áfrýjunarnefndinni taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast vegna kvörtunarinnar að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. desember 2025.

  

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 19. desember sl. sem beinist að X og lýtur að töfum á afgreiðslu umsóknar þinnar um fjárhagsaðstoð. Samkvæmt kvörtunininni var umsókninni synjað 4. desember sl. og var sú ákvörðun kærð til áfrýjunarefndar velferðarráðs sveitarfélagsins 5. sama mánaðar. Með tölvupósti 19. desember sl. var þér greint frá því að kæran yrði tekin fyrir á næsta fundi nefndarinnar 15. janúar nk. sem þú telur fela í sér óhæfilegar tafir á afgreiðslu hennar.

Í tilefni af kvörtuninni tel ég rétt að taka fram að það leiðir af 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, að almennt er ekki gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi afskipti af málum fyrr en þau hafa endanlega verið til lykta leidd innan stjórnsýslunnar. Þegar umboðsmanni berast kvartanir vegna tafa á afgreiðslu mála og fyrir liggur að mál hefur verið til meðferðar í nokkurn tíma hefur almennt, þrátt fyrir áðurnefnda reglu um að máli skuli hafa verið lokið innan stjórnsýslunnar, verið farin sú leið að spyrjast fyrir um hjá stjórnvaldinu hvað líði meðferð og afgreiðslu viðkomandi máls. Þetta hefur ekki síst verið gert til að greiða fyrir því að borgararnir fái sem fyrst úrlausn mála sinna enda hefur reyndin í flestum tilvikum verið sú að stjórnvaldið hefur brugðist við og afgreitt málið eða gefið skýringar á því hvað valdi töfunum og hvenær ráðgert sé að afgreiða málið. Í þessum tilvikum lýkur umboðsmaður athugun sinni á málinu.

Með hliðsjón af framgreindu og þar sem fyrir liggur að þér hafa nýlega verið veittar upplýsingar um stöðu málsins og hvenær fyrirhugað er að það verði tekið fyrir hjá áfrýjunarnefndinni tel ég ekki tilefni til að aðhafast vegna kvörtunarinnar að svo stöddu. Ef fyrirætlanir nefndarinnar ganga hins vegar ekki eftir getur þú leitað til mín á ný með kvörtun af því tilefni.

Með vísan til framangreinds lýk ég meðferð minni á málinu, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.