Umboðsmaður lauk frumkvæðisathugun á því hvort þáverandi fyrirkomulag eða framkvæmd réttindagæslu fyrir fatlað fólk væri í samræmi við efni og markmið samnefndra laga nr. 88/2011. Umboðsmaður óskaði eftir svörum við tilteknum spurningum frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, nú félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, en fékk ekki svör, þrátt fyrir ítrekanir. Í millitíðinni var frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands samþykkt á Alþingi en samkvæmt þeim skulu réttindagæslumenn fatlaðs fólks starfa innan Mannréttindastofnunar. Með vísan til þess að það fyrirkomulag sem athugun umboðsmanns beindist að væri ekki lengur til staðar væru ekki forsendur til að halda athuguninni áfram og ákvað umboðsmaður því að ljúka henni.
Vegna samskiptanna við ráðuneytið áréttaði umboðsmaður að ákvæði í lögum um umboðsmann veita henni víðtækan rétt til að krefja stjórnvöld um upplýsingar og skýringar. Forsenda þess að umboðsmaður geti rækt það eftirlitshlutverk með stjórnsýslunni sem henni er ætlað sé að stjórnvöld svari fyrirspurnum og láti henni í té fullnægjandi upplýsingar og skýringar sem óskað er eftir innan hæfilegs tíma.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. september 2025.
Vísað er til fyrri samskipta umboðsmanns Alþingis við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, nú félags- og húsnæðismálaráðuneytið, vegna athugunar að eigin frumkvæði á því hvort þáverandi fyrirkomulag eða framkvæmd réttindagæslu fyrir fatlað fólk væri í samræmi við efni og markmið samnefndra laga nr. 88/2011.
Af upphaflegum svörum ráðuneytisins við fyrirspurnum umboðsmanns varð hvorki ráðin afstaða ráðuneytisins til þess hvort þáverandi fyrirkomulag eða framkvæmd réttindagæslunnar væri í samræmi við efni og markmið laga nr. 88/2011 né veittar skýringar á því hvort og þá hvaða vandkvæði væru við framkvæmd laganna, líkt og óskað var eftir. Af þessu tilefni voru fyrirspurnir umboðsmanns áréttaðar í apríl 2024 en svör bárust ekki fyrr en í febrúar á þessu ári, þrátt fyrir ítrekanir.
Sem kunnugt er var í millitíðinni frumvarp til laga nr. 88/2024, um Mannréttindastofnun Íslands, samþykkt á Alþingi 22. júní 2024 en samkvæmt 9. gr. laganna skulu réttindagæslumenn fatlaðs fólks starfa innan Mannréttindastofnunar. Samkvæmt ákvæði II til bráðabirgða við lögin skyldu störf réttindagæslumanna og annars starfsfólks réttindagæslu fyrir fatlað fólk með ráðningarsamband við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið lögð niður. Samkvæmt upprunalegu gildistökuákvæði 11. gr. laganna áttu þau að taka gildi 1. janúar 2025. Með 1. gr. laga nr. 138/2024, um breytingu á lögum um Mannréttindastofnun Íslands, nr. 88/2024 (frestun gildistöku), var gildistöku þeirra hins vegar frestað til 1. maí 2025. Gildistöku ákvæðis II til bráðabirgða við lögin var þó ekki frestað. Voru störf réttindagæslumanna og annars starfsfólks réttindagæslu með ráðningarsamband við ráðuneytið þar með lögð niður 1. janúar 2025.
Athugun umboðsmanns laut að fyrirkomulagi réttindagæslu fyrir fatlað fólk eins og henni var háttað fyrir gildistöku laga nr. 88/2024. Í ljósi framangreindra breytinga á réttindagæslunni, sem höfðu í för með sér að það fyrirkomulag sem athugun umboðsmanns beindist að er ekki lengur til staðar, eru þær forsendur sem lagt var upp með hjá umboðsmanni, þ.e. að taka afstöðu til þess hvort fyrirkomulagið hafi verið í samræmi við efni og markmið laga nr. 88/2011, ekki lengur fyrir hendi. Hef ég því ákveðið að ljúka athugunni.
Vegna samskipta við ráðuneytið í tilefni af athuguninni vil ég árétta að ákvæði 7. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, veita umboðsmanni víðtækan rétt til að krefja stjórnvöld um upplýsingar og skýringar. Forsenda þess að umboðsmaður geti rækt það eftirlitshlutverk með stjórnsýslunni sem henni er ætlað samkvæmt fyrrnefndum lögum er að stjórnvöld svari fyrirspurnum og láti henni í té fullnægjandi upplýsingar og skýringar sem óskað er eftir innan hæfilegs tíma.